6 Maí 2015 17:42

Brot 74 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í austurátt, á móts við Sundlaugaveg 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 207 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.