10 Febrúar 2016 18:17

Brot 120 ökumanna voru mynduð á Sundlaugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sundlaugaveg í vesturátt, á móts við Sundlaugaveg 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 201 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 60%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Sundlaugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.