5 Ágúst 2016 15:50

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Tjaldanes í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.