30 Mars 2017 08:10

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Reykjahlíð í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.