3 Maí 2019 16:59

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Reykjahlíð í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 132 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var  á meðan hraðamælingunni stóð.