6 Ágúst 2013 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í Mosfellsdal í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 318 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102. 

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.