10 Maí 2022 10:30

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, við Hrísbrú í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.