31 Október 2022 09:45

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Mosskóga í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.