8 Mars 2023 12:03

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, við Tjaldanes í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 114.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.