8 Mars 2016 16:08

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Tjaldanes í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 40 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.