21 Mars 2016 19:15

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Tjaldanes í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 88 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 88 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tíu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.