26 Apríl 2016 12:43

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, á móts við Reykjahlíð í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.