7 Ágúst 2012 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, við Reykjahlíðarveg í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 174 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99. 

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.