3 Maí 2016 09:27

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Þúsöld í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þúsöld í norðurátt, við Grænlandsleið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 98 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Þúsöld er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.