26 Október 2022 09:54

Brot 21 ökumanns var myndað á Tunguvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg í norðurátt, að Kvíslartungu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Tunguvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.