2 Október 2014 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Tunguvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg í norðurátt, við Langagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 21 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega margir ökumenn, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Tunguvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.