23 Nóvember 2009 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Tunguvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg að Skógargerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Eftirlit lögreglunnar á Tunguvegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum á þessum stað en þeir hafa kvartað undan hraðakstri.