27 Ágúst 2008 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Tunguvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Tunguveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Einn ók á 50 km hraða eða meira en sá mældist á 58.