2 Nóvember 2022 11:50

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Úlfarsbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Úlfarsbraut í austurátt, á móts við Dalskóla. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Úlfarsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.