1 Október 2010 12:00

Brot 68 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í suðurátt, á móts við Vatnsendaskóla. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 248 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.