1 Nóvember 2013 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í austurátt, við Fagraþing. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 145 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.