5 Nóvember 2015 15:44

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í suðurátt, að Akurhvarfi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 251 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fimmtungur ökumanna, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.