24 Janúar 2022 09:56

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í norðurátt, við Grundarhvarf. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 223 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.