27 Október 2022 14:05

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í norðurátt, við Fagraþing. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 380 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.