18 September 2008 12:00

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í suðurátt, fyrir sunnan Breiðahvarf. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 256 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.  

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi, en í nágrenni hans er Vatnsendaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.