9 Mars 2020 21:45

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, við Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.