15 September 2022 17:07

Brot 31 ökumanns var myndað á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í austurátt, að Norðurbakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar í nágrenni grunnskóla (gönguleiðir) á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.