25 Mars 2014 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, á móts við Norðurbakka 19 -25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 126 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.