27 Október 2014 12:00

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í austurátt, að Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.