22 Mars 2016 17:33

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, við Norðurbakka 19-25. Á tæplega fimmtíu mínútum, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.