30 Mars 2017 08:11

Brot 54 ökumanna voru mynduð á Vesturgötu í Hafnarfirði á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturgötu í suðurátt, við Norðurbakka 19-25. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 138 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Vesturgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.