30 Júlí 2010 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, við Esjuberg. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 515 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða innan við 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Tveir hinna brotlegu mældust á 100 km/klst og sá þriðji á 101 en þarna er 90 km hámarkshraði.