30 Júlí 2010 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, við Esjuberg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 321 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 124.