10 Október 2014 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, í Kollafirði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 259 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111. 

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.