5 Febrúar 2021 09:39

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Saltvík á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 243 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.