9 Febrúar 2021 10:38

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Vík á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 242 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.