22 Júní 2021 10:34

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Kirkjuland, Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 338 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 81 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð..