28 Janúar 2022 15:05

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Móa á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 312 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 96.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.