13 Júní 2014 12:00

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Klébergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 438 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.