13 Maí 2022 09:44

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, skammt frá Skrauthólum. Á einni  klukkustund, eftir hádegi, fóru 311 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.