29 Júní 2022 14:25

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Móa á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 349 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.