14 Febrúar 2024 10:59

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Grundarhverfi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 227 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.