4 Mars 2016 17:40

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Klébergsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 181 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Þrír óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.