9 Ágúst 2017 10:26

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við á Gil á Kjalarnesi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 403 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.