29 Janúar 2021 09:25

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Kirkjuland, Kjalarnesi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 173 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fjórir óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð..