16 Júní 2009 12:00

Fjörutíu og þrír voru staðnir að hraðakstri á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi miðvikudaginn 10. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 10. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 43 ökumanna mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, gegnt Grundarhverfi. Á einni klukkustund, frá kl. 14.35 til 15.35, fór 221 ökutæki þessa akstursleið og því óku 19% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sjö óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 98.