23 Maí 2023 14:53

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, við Leirvogstungu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 259 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.