25 Apríl 2016 10:28

Brot 74 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Ásland. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 271 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sex óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.