24 Mars 2022 09:07

Brot 123 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Skálatún/Skálahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 664 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 124.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.