3 Maí 2022 09:56

Brot 184 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Skálatún/Skálahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 703 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.